Innlent

Þór­ey í Konu­koti hlaut mann­réttinda­verð­laun Reykja­víkur

Lovísa Arnardóttir skrifar
Þórey tók við verðlaununum af borgarstjóra, Einari Þorsteinssyni.
Þórey tók við verðlaununum af borgarstjóra, Einari Þorsteinssyni. Vísir/Arnar

Þórey Einarsdóttir hlaut mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir störf sín í þágu jaðarsettra einstaklinga. Þórey hefur starfað í Konukoti, fyrsta og eina athvarfinu fyrir heimilislausar konur á Íslandi, frá opnun þess.

Þórey er annar einstaklingur sem hlýtur verðlaunin, annars hafa þau verið afhent félagasamtökum eða verkefnum. Einar Þorsteinsson borgarstjóri afhenti í dag Þóreyju Einarsdóttur, mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 fyrir ómetanlegt starf hennar í þágu heimilislausra kvenna. Verðlaunin eru veitt árlega til einstaklinga, hópa, félagasamtaka eða stofnana sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.

Vinnur ómetanlegt og óeigingjarnt starf

Í tilkynningu frá borginni um verðlaunin kemur fram að í tuttugu ár hafi hún unnið störf sín af hógværð og sjaldséðu örlæti án þess að missa nokkurn tímann sjónar á kjarna starfsins: Að standa með og styðja konur sem fátt eiga annað en óvissuna.

Þóreyju voru afhent verðlaunin í Höfða fyrr í dag. Vísir/Arnar

„Þórey Einarsdóttir er ein af þeim fjölmörgu konum og fólki sem starfa á bak við tjöldin í almannaheillasamtökum innan borgarinnar, fólk sem vinnur ómetanlegt og óeigingjarnt starf í þágu meðborgara sinna og mannréttinda,“ segir í rökstuðningi valnefndar.

Verðlaunin voru veitt í Höfða í dag 16. maí, á mannréttindadegi Reykjavíkurborgar, og er markmið dagsins að vekja athygli á mannréttindum borgarbúa og mannréttindastefnu borgarinnar. Það var mannréttinda- og ofbeldisvarnarráð sem samþykkti á fundi sínum að Þórey Einarsdóttir hlyti verðlaunin. Handhafi verðlaunanna hlýtur að launum kr. 600.000,-.

Einar Þorsteinsson borgarstjóri sagði við afhendingu verðlaunanna að það væri afar mikilvægt að einstaklingar sem vinna í jafn mikilvægum málaflokki og þessum fái viðurkenningu fyrir að standa vörð um hópa sem eru berskjaldaðir í samfélaginu og eru jaðarsettir. Borgin vinni stöðugt að því í samvinnu við ótal aðila að tryggja að öll fái þá þjónustu sem þau eiga rétt á, og halda ávallt mannréttindum á lofti.

„Takk, Þórey fyrir þitt mikilvæga starf í þágu heimilislausra kvenna og mannréttinda“ sagði borgarstjóri við athöfnina.

Fyrri verðlaunahafar

Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:

Alþjóðahús 2008

Rauði Kross Íslands 2009

Blátt áfram 2010

Hinsegin dagar 2011

List án landamæra 2012

Kvennaathvarfið 2013

Geðhjálp 2014

Frú Ragnheiður 2015

Þórunn Ólafsdóttir 2016

Með okkar augum 2017

Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi -W.O.M.E.N. Á Íslandi 2018

Móðurmál – Association of Bilingualism 2019

Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020

Rótin, félag um konur áföll og vímugjafa 2021

Pepp Ísland, grasrót fólks í fátækt 2022

Trans Ísland 2023


Tengdar fréttir

Margt breyst í Konukoti á 10 árum

Í dag fagnar Konukot tíu ára afmæli sínu. Athvarfið er rekið af Rauða krossinum í Reykjavík og Reykjavíkurborg og var sett á laggirnar vegna þess að úrræði skorti fyrir heimilislausar konur með vímuefnavanda. Fréttablaðið kíkti í heimsókn og kynnti sér starfssemina.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×